17.07.12 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Carlos Vela kominn til Real Sociedad (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Carlos Vela hefur skrifað undir fjögurra ára samning við spænska efstudeildarliðið Real Sociedad.
Vela hefur verið samningsbundinn Arsenal síðustu sjö ár en hefur oftar en ekki verið lánaður út til spænskra liða á borð við Osasuna, Salamanca og Real Sociedad.

Á síðustu leiktíð lék Vela fyrir Sociedad og skoraði 12 mörk og átti 7 stoðsendingar í 35 leikjum.
Vela er 23. ára gamall og spilar yfirleitt sem sóknarmaður þó að hann sé frekar fjölhæfur, en hann getur spilað sem framliggjandi miðjumaður og hefur verið notaður á vinstri kanti.
Vela á sér fastasæti í landsliði Mexíkó, en hann hefur spilað 35 A-landsleiki og skorað 9 mörk.