17.07.12 - 20:27
Ívan Guðjón Baldursson
Chris Gunter til Reading (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Reading heldur áfram að stækka leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni, en nú hefur verið staðfest að Chris Gunter sé genginn til liðs við félagið.
Gunter er fjölhæfur varnarmaður sem spilar yfirleitt sem hægri bakvörður og hann er aðeins 22 ára gamall.

Gunter er landsliðsmaður Wales og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Reading.
,,Eftir að hafa talað við knattspyrnustjóran og aðra menn í stjórninni hjá félaginu þá líður mér eins og ég sé virkilega velkominn og ég hlakka mikið til framtíðarinnar;\" sagði Gunter.
Gunter er sjötti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Reading í sumar, en Adrian Mariappa, Pavel Pogrebnyak, Nicky Shorey, Danny Guthrie og Garath McCleary eru allir gengnir til liðs við félagið.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gunter spilað 37 landsleiki fyrir A-landslið Walesverja og er mjög leikreyndur með þeim félagsliðum sem hann hefur spilað með.