Elfar Freyr Helgason varð fyrir mikilli gagnrýni eftir undanúrslitaleik Mjólkurbikarsins þar sem Víkingur R. sigraði Breiðablik 3-1.
Elfar fékk rautt spjald fyrir ljóta tæklingu seint í leiknum og brást við með því að taka rauða spjaldið af dómaranum og henda því í jörðina.
Það var mikið rætt um þessa hegðun Elfars á Twitter og stór orð látin falla. Nú er hann sjálfur búinn að tjá sig um málið á samskiptamiðlinum.
Hann slær á létta strengi og birtir grínmyndband af atvikinu. Með myndbandinu skrifar hann: „Sé núna að boltinn var löngu farinn."
Sé núna að boltinn var löngu farinn 😂🧠 https://t.co/saCFnZrgSl
— Elfar Freyr Helgason (@elffhel) August 17, 2019
Athugasemdir