Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 17. ágúst 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Ndombele í læknisskoðun hjá Napoli
Tanguy Ndombele.
Tanguy Ndombele.
Mynd: EPA
Allt er klárt fyrir læknisskoðun Tanguy Ndombele hjá Napoli en hann er á leið til félagsins frá Tottenham.

Napoli náði samkomulagi við Tottenham fyrr í þessari viku og miðjumaðurinn er væntanlegur í læknisskoðun á morgun.

Hann mun ganga í raðir Napoli á lánssamningi út tímabilið og ítalska félagið vera með möguleika á því að kaupa hann alfarið á 30 milljónir evra.

Ndombele er 25 ára Frakki sem hefur ekki staðið undir væntingum hjá Tottenham. Hann lenti í ónáð hjá Antonio Conte á síðasta tímabili og var lánaður í janúarglugganum til Lton í Frakklandi.

Ndombele vonast til þess að koma ferlinum á beinu brautina í ítölsku A-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner