Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. september 2019 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ancelotti: Klopp vinnur keppnina fyrst hann tapaði hér
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti var kátur eftir 2-0 sigur Napoli gegn Liverpool fyrr í kvöld. Þetta var í fjórða sinn sem Ancelotti leggur ríkjandi meistara keppninnar að velli, með fjórða mismunandi félaginu.

„Það er alltaf erfitt að spila gegn Liverpool og þetta var mjög jafnt í kvöld. Þetta hafðist þó sem betur fer í lokin og við erum hæstánægðir með dýrmæt stig," sagði Ancelotti að leikslokum.

„Ég er sérstaklega ánægður með sjálfstraustið sem leikmenn sýndu. Di Lorenzo og Alex Meret voru að spila sínn fyrsta leik í Meistaradeildinni og stóðu sig með prýði."

Ancelotti var að lokum spurður út í hvað hann sagði við Jürgen Klopp er þjálfararnir kvöddust hlæjandi að leikslokum.

„Ég sagði honum að hafa ekki áhyggjur. Ef hann tapar hér þá mun hann vinna keppnina, alveg eins og í fyrra. Ég sagði honum að slaka á og taka því rólega."


Athugasemdir
banner
banner