Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 17. september 2019 18:35
Ingunn Hallgrímsdóttir
ÍA Íslandsmeistari í 2. flokki 2019
ÍA fagnaði Íslandsmeistaratitli í 2.fl.kk. síðastliðinn laugardag í A- og B- liðum.

A-liðið í 2. flokk karla vann KA/Dalvík/Reyni/Magna 5-0 í lokaleik mótsins og endaði í efsta sæti Íslandsmótsins með 46 stig og markatöluna 67-23 eða 44 mörk í plús. Liðið tapaði engum leik í sumar.

B-liðið í 2. flokk karla vann KA/Dalvík/Reyni/Magna 6-0 í lokaleik mótsins og endaði í efsta sæti Íslandsmótsins með 42 stig og markatöluna 69-12 eða 57 mörk í plús.

Myndirnar að neðan eru frá verðlauna afhendingu A- og B liða.

Athugasemdir
banner
banner
banner