Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 17. nóvember 2020 23:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Englandi
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Takk fyrir mig, Erik Hamren
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Icelandair
Hamren stýrir sínum síðasta leik hjá Íslandi á morgun.
Hamren stýrir sínum síðasta leik hjá Íslandi á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hamren ræðir við Gylfa Þór Sigurðsson.
Hamren ræðir við Gylfa Þór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hamren fer yfir málin með fjölmiðlamönnum.
Hamren fer yfir málin með fjölmiðlamönnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Líklega besta mynd sem tekin hefur verið af Hamren í starfi. Hafliði Breiðfjörð tók hana.
Líklega besta mynd sem tekin hefur verið af Hamren í starfi. Hafliði Breiðfjörð tók hana.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hamren og Freyr Alexandersson.
Hamren og Freyr Alexandersson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tekur Víkingaklappið eftir sigur á Tyrklandi.
Tekur Víkingaklappið eftir sigur á Tyrklandi.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Hamren er líklega best klæddi landsliðsþjálfari sem við höfum átt.
Hamren er líklega best klæddi landsliðsþjálfari sem við höfum átt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þakka þér fyrir þín störf, Erik Hamren.
Þakka þér fyrir þín störf, Erik Hamren.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Svíinn Erik Hamren mun á morgun stýra íslenska landsliðinu í síðasta sinn. Hann mun hætta eftir leik Íslands gegn Englandi á Wembley. Leikurinn verður síðasti leikur Íslands í A-deild Þjóðadeildarinnar í bili. Við höfum ekki enn fengið stig í Þjóðadeildinni frá stofnun hennar og spurning hvort það breytist á morgun.

Hinn 63 ára gamli Hamren tók við íslenska landsliðinu þann 8. ágúst 2018. Hann var kynntur til leiks á blaðamannafundi á Laugardalsvelli, og var Freyr Alexandersson ráðinn aðstoðarmaður hans.

Hamren fékk það verðuga verkefni að taka við liðinu af Heimi Hallgrímssyni, sem hafði stýrt Íslandi á tveimur stórmótum; EM 2016 með Lars Lagerback og HM 2018 með Helga Kolviðsson sem sinn aðstoðarmann. Hamren átti að stýra Íslandi inn á þriðja stórmótið í röð en tókst það ekki - því miður.

Hann hefur tekið ákvörðun um að hætta með liðið og er hann orðaður við Álaborg í Danmörku, félag sem hann gerði að Danmerkurmeisturum 2008.

En hvernig munum við líta til baka á tíma Hamren sem landsliðsþjálfara?

Það er mér minnisstætt þegar Elvar Geir og Tómas Þór hringdu í sænska fjölmiðlamanninn Robert Laul í útvarpsþættinum Fótbolta.net. Hringt var í Laul þegar staðfest hafði verið að KSÍ væri í viðræðum um að gera Hamren að nýjum þjálfara landsliðsins. Laul var ekki bjartur í máli þegar hann ræddi um Hamren, fyrrum landsliðsþjálfara Svía.

„Ef þið talið við stuðningsmenn sænska landsliðsins þá munu þeir segja við ykkur að loka landamærunum. Verjið eyjuna frá Hamren, kallið í herinn, vekið víkingana, gerið eitthvað. Þeir skilja ekki af hverju Ísland er að taka Hamren eftir það sem gerðist við Svíþjóð. En þetta er álit stuðningsmannanna," sagði Laul.

Almenningsálitið á Hamren var ekki gott í Svíþjóð eftir tíma hans með sænska landsliðið. Fótbolti.net ræddi við Atla Svein Þórarinsson og Brynjar Björn Gunnarsson, tvo fyrrum íslenska landsliðsmenn, fyrir ráðningu Hamren. Þeir spiluðu undir stjórn Hamren í félagsliðafótbolta, en þeir töluðu báðir mjög vel um hann.

Vitiði hvað? Hamren hefur alls ekki verið hræðilegur fyrir íslenska landsliðið, eins og Svíarnir sögðu að hann myndi vera.

Byrjunin var ekki góð og er 6-0 tap gegn Sviss í fyrsta leik Svíans, eitthvað sem er ekki gaman að rifja upp. Við vorum í gríðarlega erfiðum riðli í Þjóðadeildinni með Belgíu og Sviss þar sem við töpuðum öllum okkar leikjum, en okkur tókst að gera jafntefli við nýkrýnda heimsmeistara Frakka í vináttulandsleik í október 2018. Það var frábær leikur hjá íslenska liðinu þar sem okkur tókst að komast í 2-0 en Kylian Mbappe jafnaði metin fyrir franska liðið úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Fyrsti sigur Hamren með íslenska liðið kom í mars 2019 þegar við unnum skyldusigur á Andorra, 2-0, í fyrsta leik í undankeppni EM. Við töpuðum fyrir Frökkum í París, en í kjölfarið unnum við þrjá leiki í röð. Þar á meðal var líklega besta stund Hamren sem þjálfara Íslands þegar við unnum Tyrkland 2-1 á heimavelli. Hamren tók upp vindil á blaðamannafundi eftir leik og vinsældir hans jukust.

Sumarið 2019 var gott eftir sigurinn á Tyrkjum en septembermánuður var erfiður. Við unnum skyldusigur á Moldóvu á heimavelli en næsti leikur á eftir var erfiður leikur í Albaníu þar sem við töpuðum 4-2 eftir að staðan hafði verið jöfn 2-2. Það var gríðarlega súrt og gerði okkur erfitt fyrir í riðlinum.

Eftir tapið við Albaníu töpuðum við naumlega gegn Frakklandi heima og gerðum jafntefli við Tyrkland úti. Við unnum skyldusigra á Andorra og Moldóvu. Niðurstaðan var þriðja sætið í riðlinum og umspil. Tyrkir náðu öðru sæti með fjórum stigum meira en við. Þeir náðu fjórum stigum gegn Frakklandi og það gerði gæfumuninn. Eina tap Tyrkja í riðlinum var gegn okkur á Laugardalsvelli og þeir gerðu tvö jafntefli, gegn okkur á heimavelli sínum og gegn Frakklandi.

Við fórum í umspilið um sæti á EM og þar unnum við Rúmeníu í undanúrslitum en töpuðum fyrir Ungverjalandi þar sem allt var undir í úrslitaleiknum. Það er tap sem mun því miður lengi lifa í minningunni. Ísland leiddi 1-0 frá 11. mínútu til 88. mínútu, en Ungverjar skoruðu tvö mörk seint og unnu leikinn. Þeir verða á EM næsta sumar, ekki við.

Við náðum í 19 stig í undankeppni EM í riðli með Frakklandi, Tyrklandi, Albaníu, Moldóvu og Andorra. Það er þriðji besti árangur Íslands í tíu leikja riðli í undankeppni. Besti árangurinn var í undankeppni HM 2018 þar sem við enduðum með 22 stig og næst besti árangurinn var fyrir undankeppni EM 2016 þar sem við enduðum með 20 stig. Við komumst inn á þau stórmót. Í fyrstu undankeppni Lars Lagerback, fyrir HM 2014, enduðum við með 17 stig úr 10 leikjum og fórum í umspil, en töpuðum fyrir Króatíu í umspilinu.

Við erum með frábært lið, en við erum bara rúmlega 350 þúsund manna þjóð og ekki hægt að gera kröfu á stórmót í fótbolta alltaf. Við vorum mjög, mjög nálægt því undir stjórn Hamren og Freys ; við vorum bara fimm mínútum frá því. Eins grátlegt og það er.

Árangurinn í Þjóðadeildinni hefur ekki verið upp á marga fiska, en það skiptir ekki eins miklu máli og undankeppni fyrir EM eða HM. Í Þjóðadeildinni höfum við bara spilað gegn liðum sem eru sterkari en við á pappír.

Þá hefur Hamren verið mjög óheppinn með meiðsli lykilmanna. U21 landslið Íslands fór á EM 2011 og kjarninn úr því liði hefur spilað stórt hlutverk í velgengni landsliðsins. Leikmenn úr því liði sem spila enn í dag mjög stórt hlutverk í landsliðinu eru: Aron Einar Gunnarsson, Alfreð Finnbogason, Birkir Bjarnason, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson. Í 27 leikjum við stjórnvölinn hefur Hamren aðeins náð að stilla þessum leikmönnum þrisvar upp í sama byrjunarliði. Þar af gerðist það í báðum umspilsleikjum Íslands fyrir EM næsta sumar.

Lukkan var ekki með Hamren í liði. Tyrkland stóð sig frábærlega í undankeppninni og tók fjögur stig gegn Heimsmeisturum Frakka; eitthvað sem ekki var búist við fyrir fram. Hamren lítur samt sem áður örugglega til baka á nokkra leiki þar sem hefði verið hægt að gera ögn betur. Albaníuleikurinn úti og Ungverjaleikurinn í umspilinu eru sérstaklega sárir. Ég geri ráð fyrir því að hann hugsi um ákveðnar ákvarðanir í þeim leikjum þar sem við missum leikina frá okkur á síðasta stundarfjórðungnum. Það er alltaf hægt að hugsa um ef og hefði.

En að segja að Hamren hafi verið slæmur landsliðsþjálfari fyrir Ísland er ekki sanngjarnt.

„Ég held að það séu allir leikmenn liðsins sammála um að hann hafi unnið mjög gott starf. Hann og Freyr (Alexandersson, aðstoðarþjálfari) hafa verið dæmdir ósanngjarnt fyrir árangur," sagði Kári Árnason á fréttamannafundi í dag. „Við náðum góðum árangri í riðlinum fyrir EM. Við náðum í 19 stig sem hefði átt að duga ef að Frakkar hefðu unnið Tyrki eins og allir bjuggust við. Tyrkir gerðu sitt mjög vel og náðu í fleiri stig."

„Það er ætlast til að við förum á öll mót en stundum dettur þetta ekki fyrir mann."

Það er rétt hjá Kára. Við erum góðu vön, en það er ekki hægt að ætlast til þess að við förum á öll stórmót. Núna er stefnan sett á HM 2022 en undankeppnin hefst í mars og þar verðum við með nýjan landsliðsþjálfara í brúnni.

Hamren kveður á morgun og ég tel hann hafa verið flottan landsliðsþjálfara. Hann hélt í sömu gildi og áður hafa nýst okkur vel; dugnaður, verjast vel, nýta skyndisóknir og föst leikatriði, en inn á milli hafa líka komið kaflar þar sem við höfum pressað hátt og vel. Við spiluðum yfirleitt 4-5-1 en höfum líka spilað með fimm manna vörn gegn allra sterkustu liðunum.

Hamren og Freyr hafa gefið nokkrum leikmönnum sitt fyrsta tækifæri, leikmönnum sem munu vonandi spila stórt hlutverk í framtíðinni. Má þar nefna Alex Þór Hauksson, Arnór Sigurðsson, Andra Fannar Baldursson, Jón Dag Þorsteinsson, Mikael Neville Anderson og Willum Þór Willumsson. Á morgun gætu Ísak Bergmann Jóhannesson og Sveinn Aron Guðjohnsen leikið sinn fyrsta landsleik. Þá má ekki gleyma því að Guðlaugur Victor Pálsson hefur fest sig í sessi undir stjórn Hamren og Freysa, og er í dag einn vinsælasti fótboltamaður þjóðarinnar.

Það eru nýir leikmenn að koma inn í liðið, en það er ekki eins og allt liðið okkar sé að fara út. Gullkynslóðin okkar á að minnsta kosti eina undankeppni eftir en það eru á hreinu að einhverjir leikmenn sem hafa spilað stórt hlutverk í velgengi liðsins muni detta út og aðrir fari í stærra hlutverk. Það er kjörið að þessir leikmenn læri af og spili með Aroni, Gylfa og þeim leikmönnum sem hafa farið með okkur á tvö stórmót.

Hamren er góður maður sem kemur vel fyrir. Ég óska honum alls hins besta í framtíðinni. Hver veit hvað hefði gerst ef hann hefði tekið aðra undankeppni? Ekki er vitað hvort að Freyr verði áfram í kringum liðið eða ekki. Hann var nýlega ráðinn sem aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar hjá Al Arabi í Katar en hefur ekki útilokað að vera áfram hjá landsliðinu.

Árangur Hamren með Ísland þegar einn leikur er eftir:
9 sigrar (gegn Andorra x2, Albaníu, El Salvador, Kanada, Moldóvu x2, Rúmeníu og Tyrklandi)
5 jafntefli (gegn Frakklandi, Eistlandi, Katar, Svíþjóð og Tyrklandi)
13 töp (gegn Albaníu, Belgíu x4, Danmörku x2, Englandi, Frakklandi x2, Sviss x2 og Ungverjalandi)

Ég vil enda þessa grein á að senda samúðarkveðjur til Hamren og fjölskyldu hans. Íslenska liðið leikur á morgun með sorgarbönd eftir að Per Hamren, faðir Erik, lést síðastliðið sunnudagskvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner