Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 18. janúar 2020 16:10
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Al Arabi steinlá í Salzburg - SonderjyskE tapaði
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í Al Arabi steinlágu í æfingaleik gegn Salzburg í dag.

Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Al Arabi en tókst ekki að koma í veg fyrir væna rassskellingu.

Heimamenn í Salzburg leiddu 2-0 í hálfleik og bættu fjórum við í síðari hálfleik. Lokatölur urðu því 6-0.

Salzburg 6 - 0 Al Arabi
1-0 D. Szoboszlai ('4)
2-0 Hwang Hee-chan ('30)
3-0 S. Prevljak ('51)
4-0 M. Okugawa ('60)
5-0 P. Daka ('65)
6-0 S. Prevljak ('71)

Ísak Óli Ólafsson og Eggert Gunnþór Jónsson voru þá í byrjunarliði SönderjyskE sem tapaði fyrir B-deildarliði Kolding.

SönderjyskE leikur í efstu deild í Danmörku og er þar í fallbaráttu, með 22 stig eftir 20 umferðir.

SönderjyskE 0 - 1 Kolding
0-1 M. Hansen ('6)
Athugasemdir
banner
banner