Fotbolti.net
18.03.23 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson

De Paul vill fá Messi til Atlético - „Við segjum Correa að gefa honum tíuna"

Rodrigo De Paul og Lionel Messi saman hjá Atlético?

Rodrigo De Paul og Lionel Messi saman hjá Atlético?

Canon

Mynd: EPA

Rodrigo De Paul, liðsfélagi Lionel Messi í argentínska landsliðinu, vill að hann komi til Atlético Madríd í sumar, en þetta sagði hann í viðtali í spænska útvarpsþættinum El Larguero.
Samband Messi og De Paul er afar náið og er miðjumaðurinn þekktur fyrir það eitt að vera einhverskonar lífvörður Messi á vellinum.

Á HM var De Paul mættur í alla sem reyndu að ógna stórstjörnunni og sá til þess að enginn myndi tækla einn þann besta í heiminum.

De Paul vill nú fá Messi til Atlético og segist ætla að hjálpa honum að finna íbúð í Madríd. Messi verður samningslaus í sumar en ekki er ákveðið hvort hann verði áfram í París.

„Fáum Messi til Atlético. Við segjum Angelito (Correa) að gefa honum tíuna og svo förum við saman og leitum að íbúð í miðborg Madrídar,“ sagði De Paul.

Þegar De Paul var beðinn um að lýsa Messi þá var hann með stutt og hnitmiðað svar: „Hann er geimvera,“ sagði De Paul.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.