Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Guðni: Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
Jóhann Kristinn: Eina sem við getum gert er að skammast okkar í kvöld
Matti er stoltur að hafa haldið hreinu tvo leiki í röð
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
   mið 18. mars 2026 22:17
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst við byrja heilt yfir frekar ferskt. Vorum grimmir og vorum að pressa vel. Þetta var eins og Blikaleikurinn svolítið, við vorum að skapa okkur góðar stöður en náðum ekki að setja hann í netið" sagði Adolf Daði Birgisson leikmaður FH eftir úrslitaleik gegn Stjörnunni í Þungavigtarbikarinum.


Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  0 FH

Hvernig líður þér eftir félagaskiptin?

„Mjög vel, ég ber miklar tilfinningar fyrir Stjörnunni, nánast uppalinn hérna, er Álftnesingur. Búinn að vera í Stjörnunni lengi, bara tilfinningar en gott að skipta um umhverfi."

Hefur nýtt umhverfi góð áhrif á þig?

„Já vonandi, það kemur í ljós. Það er undir mér komið að sanna mig og sýna hvað ég get. Vonandi gengur vel."

 Voru tækifærin of fá hjá Stjörnunni, finnst þér þú fleiri tækifæri hjá FH?

„Ég veit það ekki alveg það kemur bara í ljós, hvort að Jói velji mig í liðið eða ekki, ég ætla að gera mitt besta til að hjálpa liðinu og reyna að ná árangri persónulega og liðinu auðvitað líka."

Hvernig líður þér með Jóa Kalla, projectið og stjórnina?

„Þetta er búið að vera geggjað, ákefðin og það sem þeir eru að leggja inn í þetta. Ef við strákarnir leggjum sama metnað og Ben og allir þessir gæjar eru að gera, Jói og Árni þá held ég að við getum rosalega langt."

Þú hefur þá bilandi trú á þessu liði?

„Já, alveg klárlega, hundrað prósent. Standa saman og gera þetta eins og menn. Ég held að, komnir í svolítið svona eitthvað allir á móti okkur núna, en bara áfram gakk."



Slapp
banner
banner