Það eru þrír leikir í Meistaradeildinni klukkan 20:00. Leikur Barcelona og Newcastle er núna í gangi.
Liverpool er 1-0 undir gegn Galatasaray frá Tyrklandi fyrir leik liðanna á Anfield í kvöld. Arne Slot kallar í Mohamed Salah eftir að hafa byrjað með hann á bekknum gegn Tottenham í síðasta leik. Rio Ngumoah tekur sér sæti á bekknum.
Liverpool er 1-0 undir gegn Galatasaray frá Tyrklandi fyrir leik liðanna á Anfield í kvöld. Arne Slot kallar í Mohamed Salah eftir að hafa byrjað með hann á bekknum gegn Tottenham í síðasta leik. Rio Ngumoah tekur sér sæti á bekknum.
Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Frimpong, Konate, Van Dijk, Kerkez, Gravenberch, Mac Allister, Szoboszlai, Salah, Wirtz, Ekitike.
Byrjunarlið Galatasaray: Ugurcan, Boey, Singo, Abdulkerim, Jakobs, Lemina, Torreira, Sara, Sallai, Baris Alper, Osimhen.
Tottenham er 2-5 undir gegn Atletico Madrid. Antonin Kinsky byrjaði eftirminnilega leikinn í Madríd en hann er á bekknum í kvöld. Tottenham byrjar með fimm manna vörn.
Byrjunarlið Tottenham: Vicario, Porro, Romero, Dragusin, Van de Ven, Spence, Gray, Sarr, Tel, Simons, Kolo Muani.
Byrjunarlið Atletico: Musso, Molina, Le Normand, Hancko, Ruggeri, Simeone, Llorente, Cardoso, Lookman, Griezmann, Alvarez.
Þá er Jonas Urbig orðinn nægilega heill til að byrja í markinu hjá Bayern gegn Atalanta. Það var talað um að hinn 16 ára gamli Leonard Prescott þyrfti að byrja í markinu hjá Bayern í þessum leik en svo er ekki. Harry Kane er búinn að jafna sig af meiðslum og byrjar.
Byrjunarlið Bayern: Urbig; Stanisic, Tah, Kim, Guerreiro; Bischof, Pavlovic; Karl, Goretzka, Luis Díaz; Kane.
Byrjunarlið Atalanta: Sportiello; Kossounou, Hien, Scalvini; Bellanova, De Roon, Pasalic, Bernasconi; De Ketelaere, Sulemana; Scamacca.
Athugasemdir


