Liverpool er að ganga af göflunum gegn Galatasaray í leik sem núna stendur yfir í Meistaradeildinni.
Fyrri leikurinn í Tyrklandi endaði 1-0 fyrir Galatasaray og því hafði Liverpool verk að vinna í kvöld.
Fyrri leikurinn í Tyrklandi endaði 1-0 fyrir Galatasaray og því hafði Liverpool verk að vinna í kvöld.
Staðan í hálfleik var 1-0 á Anfield eftir mark Dominik Szoboszlai, en á fyrstu 15 mínútum seinni hálfleiks hefur nánast allt gengið upp hjá Liverpool.
Mohamed Salah klikkaði á vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks en hann er búinn að vera frábær í seinni hálfleik, búinn að skora og leggja upp. Staðan er orðin 4-0 og það er meira að segja búið að dæma mark af Liverpool vegna rangstöðu.
Hvað sagði Arne Slot, stjóri Liverpool, eiginlega við sína menn í hálfleik?
Athugasemdir




