„Bara mjög vel, mér fannst það góður leikur, svolítið svona erfiður fyrri hálfleikur. Þeir pressuðu stíft og fengu að brjóta í hvert skipti sem við vorum að komast fram hjá þeim. Voru eiginlega ekkert stoppaðir, þá verður leikurinn mjög erfiður og hægur. Þannig að mér fannst svona maður hefði alveg fundist eðlilegt að grípa aðeins betur inn í þar, þannig að fyrri hálfleikurinn var aðeins þurr og gerðist lítið. Fór eiginlega allur fram bara á okkar vallarhelming, við að reyna að brjóta pressuna og þegar þeir stoppa með þessum hætti en svo koma betra flæði í þetta í seinni hálfleik. Svo auðvitað riðlast þetta mikið hjá þeim þegar þeir gera mikið af skiptingum en samt sem áður, ánægður með hvernig við spiluðum og orkustigið er töluvert öðruvísi en í síðasta leik" sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar eftir 2-0 sigur í úrslitaleik Þungavigtarbikarsins gegn FH.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 FH
Má segja að þið viljið ekki spila eins og þið voruð að spila í fyrri hálfleik og viljið frekar spila eins og þið voruð að gera í seinni hálfleik?
„Það var allt í lagi hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik. Við hefðum getað leyst sumar stöður miklu betur. Það er allt i lagi að lið beiti þeirri taktík að brjóta bara alltaf þegar maður kemst fram hjá þeim, en þá þarf einhver að taka einhvers staðar og fá þá til þess að taka afleiðingunum af því. Mér fannst það ekki gert og þá verður þetta svona endalaust þannig leikur. En mér fannst við gera margt vel í fyrri og FHingar áttu líka sín móment og spiluðu bara vel í dag. Þannig að hörku leikur en ég var ánægður með spilamennskuna okkar og aðallega orkustigið frá liðinu."
Voru FHingar full hörkulegir?
„Sumt var full harkalegt, en ég bara meina að það eru tuttugu brot í fyrri hálfleik, eitthvað álíka. Þá einhvers staðar hlítur einhver að grípa inn í og að það séu einhverjar afleiðingar við því. Annars er þetta hætta að vera fótbolti og leikurinn alltaf stopp og verður svolítið skrýtinn af því ég sé ekkert af taktíkinni sem þeir beita mér finnst að einhvers staðar þurfum við að grípa inn. Eins og ég segi bara hörku fyrri hálfleikur og svolítið stál í stál af því að leikurinn fékk að ganga með þessum hætti ."
Á dómarinn að gera betur?
„Við getum allir gert betur og ég var ósáttur við þetta, nánast að öðru leyti fannst mér þeir dæma leikinn vel."
Horfðirðu á leikinn í gær gegn Vestra og hvernig fannst þér ungu leikmennirnir spila?
„Já ég horfði á hann. Mér fannst það bara geggjað að horfa á þá, þeir eiga mikið hrós skilið. Auðvitað búið að fara nokkrir dagar í að æfa með þeim og Hrannar hefur tekið hitann á því. Ég held að allir Stjörnumenn sem hafa eitthvað fylgst með þessum leik séu mjög stoltir af strákunum, þeir gerðu vel. Skora tvö mörk og ná stigi, bara unun að horfa á þetta."
Eru sumir að gera tilkall til þess að vera á leikskýrslu í Bestu Deildinni?
„Já, það verða alltaf einhverjir á skýrslu í þessum yngri sætum á bekk. Það eru þessir strákar margir hérna hafa verið slatta með okkur og eru bara mjög spennandi og munu koma svolítið inn í þetta með okkur bæði sumar og næsta sumar og alltaf meira og meira."
























