Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 07:55
Elvar Geir Magnússon
Ljóst í dag hverja Arnar tekur tekur með sér til Kanada
Arnar Gunnlaugsson.
Arnar Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslenska landsliðið leikur tvo vináttulandsleiki í Kanada síðar í þessum mánuði; gegn Kanada og Haíti.

Í dag klukkan 13 verður landsliðshópur Íslands fyrir leikina opinberaður og Arnar Gunnlaugsson ræðir við fjölmiðla á fréttamannafundi í kjölfarið.

Leikirnir eru innan landsleikjaglugga og spennandi að sjá hverjir verða fyrir valinu.

Leikirnir eru hluti af leikjaseríu fjögurra þjóða þar sem hver þjóð leikur tvo leiki. Kanada, Haítí og Túnis eru á meðal þátttökuþjóða á HM 2026 sem fram fer í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó.

Laugardagur 28. mars: Kanada – Ísland
Laugardagur 28. mars: Túnis - Haítí
Þriðjudagur 31. mars: Haítí - Ísland
Þriðjudagur 31. mars: Kanada - Túnis

Allir fjórir leikirnir fara fram á Canada BMO Field leikvanginum í Ontario – tveir leikir á dag á sama leikvanginum
Athugasemdir
banner
banner