Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 13:48
Elvar Geir Magnússon
Saka stjórn afríska sambandsins um spillingu - „Leikir eiga að vinnast á vellinum“
Um milljón manns fögnuðu á götum Dakar eftir að Senegal vann Marokkó í úrslitaleiknum.
Um milljón manns fögnuðu á götum Dakar eftir að Senegal vann Marokkó í úrslitaleiknum.
Mynd: EPA
Marokkóska byrjunarliðið í úrslitaleiknum.
Marokkóska byrjunarliðið í úrslitaleiknum.
Mynd: EPA
Senegalska ríkisstjórnin hefur kallað eftir hlutlausri rannsókn á því hvort spilling sé innan stjórnar afríska fótboltasambandsins eftir að Afríkumeistaratitillinn var tekinn af Senegal og látinn í hendur Marokkó.

Senegal vann Marokkó 1-0 í úrslitaleiknum í janúar en sautján mínútna tafir urðu á leiknum þegar senegalska liðið gekk af velli til að mótmæla dómgæslunni.

Í gær var svo tilkynnt að Marokkó fengi dæmdan 3-0 sigur á þeim rökum að senegalska liðið hefði í raun gefið leikinn með því að ganga af velli.

Þessu máli er hvergi nærri lokið
Senegalska fótboltasambandið hefur tilkynnt að það muni áfrýja dómnum til CAS, Alþjóða íþróttadómstólsins, og í yfirlýsingu frá ríkisstjórn landsins segir að hún hafni algjörlega þessari ólöglegu og óréttmætu tilraun til að svipta landsliði sínu bikarnum.

Abdoulaye Seydou Sow, framkvæmdastjóri senegalska sambandsins, segir að enginn fótur sé fyrir þessari ákvörðun samkvæmt lögum.

„Við töldum að dómstóllinn væri þarna til að fara eftir lögunum en ekki til að gefa skipanir. Lögin eru með okkur í liði og þessu máli er hvergi nærri lokið. Senegal mun verja rétt sinn allt til enda," segir Sow.

Úrslitin eiga að ráðast á vellinum en ekki í dómssölum
Raymond Hack, lögmaður og meðlimur í aganefnd FIFA, setur stórt spurningamerki við þá ákvörðun að breyta úrslitum leiksins.

„Sirkúsinn heldur áfram. Mikið mun velta á skýrslu dómara leiksins en það að hann leyfði leiknum svo að halda áfram segir manni að hann hafi verið sáttur með að halda leik áfram. Hann er sá eini sem getur flautað leikinn af. Ekki yfirvöld eða fótboltasambönd, bara dómarinn," segir Hack.

„Annars ertu að fara að bjóða upp á það um allan heim að þegar lið eru ósammála ákvörðunum þá kæra þau niðurstöðuna. Leikir eiga að vinnast á vellinum en ekki í dómssölum."
Athugasemdir
banner