Fotbolti.net
18.03.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Verður hann besti vinstri bakvörður heims?

Verður hann besti vinstri bakvörður heims?
Canon

Mynd: EPA

„Hann hefur allt til brunns að bera til að verða einn besti vinstri bakvörður heims. Ég tel að hann sé orðinn einn af þeim bestu nú þegar," segir Kieran Trippier um liðsfélaga sinn Lewis Hall.

Trippier er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum og hefur tröllatrú á hinum 21 árs gamla Hall sem fékk verðskuldað lof fyrir framgöngu sína í 1-1 jafnteflinu gegn Barcelona í síðustu viku.

Hall hefur verið að slípast vel sem leikmaður og hélt stórstjörnunni Lamine Yamal í skefjum í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
„Hefði aldrei trúað því að við myndum spila í Meistaradeildinni"
TENGT EFNI

„Hefði aldrei trúað því að við myndum spila í Meistaradeildinni"

Spænskir fjölmiðlar kölluðu Hall "anti-Lamine" en Yamal tókst ekki að komast framhjá enska bakverðinum í leiknum. Á endanum var það þó Yamal sem jafnaði fyrir Barcelona en það mark kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

„Lewis er feiminn persónuleiki en frammistaða hans talar fyrir sig sjálf. Hann hefur verið ótrúlega góður og getur náð eins langt og hann vill. Hann er það sérstakur leikmaður," segir Trippier um Hall.

Það verður forvitnilegt að sjá hvort Hall nái fram álíka frammistöðu í dag þegar seinni leikur Barcelona og Newcastle verður á Nývangi 17:45. Staðan í einvíginu er jöfn 1-1 eins og áður sagði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.