Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson mun í kvöld leika sinn stærsta leik á ferlinum til þessa, þegar lið hans Real Sociedad mætir Atletico Madrid í úrslitum spænska bikarsins, konungsbikarsins fræga.
Orri fór í ítarlegt viðtal við Diario AS í aðdraganda leiksins þar sem hann tjáir sig um lífið á Spáni, meiðslakaflann, vinsældir sínar meðal stuðningsmanna, spennuna fyrir úrslitaleiknum og fleira.
Orri fór í ítarlegt viðtal við Diario AS í aðdraganda leiksins þar sem hann tjáir sig um lífið á Spáni, meiðslakaflann, vinsældir sínar meðal stuðningsmanna, spennuna fyrir úrslitaleiknum og fleira.
Vinir og vandamenn gera sér ferð frá Íslandi
Það má fastlega ráð fyrir því að Orri byrji á bekknum í úrslitaleiknum, sem er spilaður í Sevilla og hefst 19 að íslenskum tíma. Hann er fyrir aftan spænska landsliðsmanninn Mikel Oyarzabal, fyrirliða Real Sociedad, í goggunarröðinni en er tilbúinn að láta að sér kveða ef á þarf að halda.
„Ég er ekki að spila alveg eins mikið og ég vil en það er hluti af fótboltanum. Það er samkeppni og liðið er að spila vel. Mér finnst ég hafa gert vel þegar ég hef fengið tækifærið og vona að ég geti komið með meira að borðinu," segir Orri í viðtalinu við AS.
Hann segir að leikurinn framundan sé sá mikilvægasti sem hann hafi tekið þátt í á ferlinum.
„Já klárlega. Ég hef aldrei spilað leik á þessu stigi svo þetta er gríðarlega spennandi fyrir mig. Ég er mjög ánægður með að vera hluti af þessu og er mjög spenntur."
Margir af hans nánustu vinum og fjölskyldumeðlimum hafa gert sér ferð til Spánar og verða á vellinum í Sevilla í kvöld. Atletico Madrid er auðvitað talið sigurstranglegra liðið en Orri talar um að úrslitaleikir séu einstakir og þar skipti staðan í deildinni ekki máli.
Föðurhlutverkið breytt miklu
Í viðtalinu talar Orri einnig um lífið utan vallar og segist njóta sín vel í San Sebastian og sé mjög hrifinn af matarmenningunni sem sé mjög ólík því sem hann þekkir frá Íslandi.
Orri og kærasta hans eignuðust sitt fyrsta barn á síðasta ári og segir hann að það hafi breytt miklu í sínu lífi. Uppáhalds tímapunktur sinn á deginum sé þegar hann kemur heim og hittir unga dóttur sína.
„Það hefur mikið breyst eftir að ég varð faðir. Daglegt líf breytist auðvitað því þú tekur meiri ábyrgð og hefur ekki eins mikið frjálsræði. Áður skipti fótboltinn mig öllu máli en nú er meira, sem ég nýt mikils. Ég vil verja tíma með dóttur minni og hugsa ekki bara um fótbolta. Ég tel að það sé mikilvægt að vera ekki alltaf að hugsa um fótbolta," segir Orri.
Landsliðið kemur einnig við sögu í viðtalinu og draumur hans um að spila fyrir Ísland á stórmóti. Draumur sem hann segir að sé raunhæfur.
