Fotbolti.net
18.06.21 - 21:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Ein besta frammistaða sem sést hefur í skoskri treyju"

„Ein besta frammistaða sem sést hefur í skoskri treyju"
Canon

Mynd: EPA

Powerade
Billy Gilmour var maður leiksins þegar England og Skotland mættust á EM í dag.

Gilmour átti frábæran leik og skilaði frábærri tölfræði. Andy Robertson, fyrirliði Skota, tjáði sig um frammistöðu hins tvítuga Gilmour í viðtali eftir leik.
„Þetta er ein besta frammistaða sem sést hefur í skoskri treyju. Ég ræddi við hann á hótelinu í dag, leit á hann og sá að það er ekkert sem kemur honum úr jafnvægi," sagði Robertson.

„Hann mun leika eins marga landsleiki og hann vill fyrir Skotland, hann á mikla framtíð fyrir sér en núið er líka mjög gott," bætti Robertson við.

Gilmour er miðjumaður Chelsea en hann lék ekki í fyrsta leik Skotlands, gegn Tékklandi, í mótinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.