Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 10:12
Elvar Geir Magnússon
Blikar mæta pólsku meisturunum ef þeir vinna Egnatia
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Örn Árnason.
Ívar Örn Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver Ekroth.
Oliver Ekroth.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistarar Breiðabliks drógust gegn albönsku meisturunum í Egnatia í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í gær. Nú rétt í þessu var dregið í 2. umferðina.

Ef Blikar vinna Egnatia munu þeir mæta pólsku meisturunum í Lech Poznan í 2. umferð sem spiluð verður 22/23. júlí og 29/30. júlí. Fyrri leikurinn í Póllandi. Gísli Gottskálk Þórðarson er meðal leikmanna Lech Poznan.

Ef Breiðablik tapar fyrir Egnatia færast þeir yfir í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Í hádeginu verður dregið í þá umferð en Breiðablik gæti mætt tapliðunum úr einhverjum af þessum einvígjum:

FCSB frá Rúmeníu - Inter Club d'Escaldes frá Andorra
Ludogorets frá Búlgaríu - Dinamo-Minsk frá Belarús
KuPS Kuopio frá Finnlandi - Milsami Orhei frá Moldóvu

   17.06.2025 12:20
Blikar fara til Albaníu

KA kemur inn í 2. umferð
Bikarmeistarar KA verða í pottinum þegar dregið verður í 2. umferðina í Sambandsdeildinni klukkan 12. Hér má sjá mögulega mótherja KA:

Sparta Prag frá Tékklandi
Charleroi frá Belgíu
Riga frá Lettlandi
Silkeborg frá Danmörku
Nömme Kalju frá Eistlandi eða Partizani frá Albaníu

   17.06.2025 14:00
UEFA veitir Greifavellinum undanþágu

Mögulegir mótherjar Víkings og Vals
Í gær var ljóst að Víkingur mun mæta FC Malisheva frá Kósóvó í 1. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar en Valur mætir Flora Tallinn frá Eistlandi.

Ef Víkingur vinnur Malisheva mun liðið mæta einu af þessum liðum:

Hibernians frá Möltu
Vllaznia frá Albaníu eða Daugavpils frá Lettlandi
Györi frá Ungverjalandi
Arda Kardzhali frá Búlgaríu
Dungannon Swifts frá Norður Írlandi

Ef Valur vinnur Flóru mun liðið mæta einu af þessum liðum:

HB frá Færeyjum
Kauno Zalgiris frá Litáen eða Penybont frá Wales
Zeljeznicar frá Bosníu eða Koper frá Slóveníu
Shakhtar Donetsk frá Úkraínu eða Ilves Tampere frá Finnlandi
Sheriff Tiraspol frá Moldóvu eða Pristína frá Kósovó

   17.06.2025 14:23
Valur fer til Eistlands og Víkingur til Kósóvó

Athugasemdir
banner
banner