Nú í hádeginu var dregið í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar en viðureignirnar þar verða spilaðar 24. og 31. júlí 2025.
Bikarmeistarar KA koma inn í 2. umferðina og munu mæta Silkeborg frá Danmörku. Liðið hafnaði í sjöunda sæti í dönsku úrvalsdeildinni.
Bikarmeistarar KA koma inn í 2. umferðina og munu mæta Silkeborg frá Danmörku. Liðið hafnaði í sjöunda sæti í dönsku úrvalsdeildinni.
Í gær var ljóst að Víkingur mun mæta FC Malisheva frá Kósóvó í 1. umferð. Ef Víkingur kemst áfram mun liðið mæta Vllaznia frá Albaníu eða Daugavpils frá Lettlandi.
Valur mætir Flora Tallinn frá Eistlandi og ef Valsmenn komast áfram munu þeir mæta Kauno Zalgiris frá Litáen eða Penybont frá Wales.
Ef Breiðablik tapar fyrir Egnatia í forkeppni Meistaradeildarinnar færast þeir yfir í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar og mæta þar tapliðinu úr viðureign Ludogorets frá Búlgaríu og Dinamo-Minsk frá Belarús. Fyrr í dag var ljóst að með sigri gegn Egnatia munu Blikar mæta Lech Poznan í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir