Fotbolti.net
18.06.26 - 04:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Luis Díaz frábær í sigri Kólumbíu

HM: Luis Díaz frábær í sigri Kólumbíu
Canon

Mynd: EPA

Úsbekistan 1-2 Kólumbia
0-1 Daniel Munoz ('40 )
1-1 Abbosbek Fayzullaev ('60 )
1-2 Luis Díaz ('65 )
1-3 Jaminton Campaz ('90 )
Luis Díaz var allt í öllu þegar Kólumbía vann nauman sigur á Úsbekistan á HM í nótt.

Kólumbía var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og náði forystunni þegar bakvörðurinn Daniel Munoz komst inn á teiginn og skoraði laglegt mark eftir frábæran undirbúning Díaz.

Abbosbek Fayzullaev jafnaði metin fyrir Úsbekistan eftir klukkutíma leik eftir mistök kólumbíska markvarðarins.

Staðan var ekki lengi jöfn því Díaz skoraði fimm mínútum siðar. Hann átti skot sem markvörður Úsbekistan náði að koma hendinni í en boltinn fór í innanvert hliðarnetið.

Það var síðan Jaminton Campaz sem innsiglaði sigurinn í blálokin þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Cucho Hernandez. Kólumbía er á toppi K-riðils eftir jafntefli Portúgal og Kongó.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.