Fotbolti.net
18.06.26 - 08:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Símanúmer Messi undir í veðmáli milli Alberts og Eiðs

Símanúmer Messi undir í veðmáli milli Alberts og Eiðs
Canon

Mynd: EPA

Eiður Smári Guðjohnsen og Albert Brynjar Ingason slógu á létta strengi í HM kvöldi á RÚV í gær.

Landsliðsmaðurinn Daníel Tristan Guðjohnsen, sonur Eiðs Smára, komst í heimsfréttirnar á dögunum eftir samskipti hans við Lionel Messi eftir leik Íslands gegn Argentínu í aðdraganda HM.
Það var farið yfir 3-0 sigur Argentínu gegn Alsír í fyrri nótt í HM kvöldi þar sem Messi skoraði öll mörkin.

„Það á bara að standa upp og klappa hægt," sagði Eiður. Þá spurði Albert hvort Eiður væri með símanúmer Messi þar sem hann spilaði með Argentínumanninum hjá Barcelona á sínum tíma.

„Ég held að það sé gamalt númer. Daníel sonur minn er orðinn betri vinur hans en ég," sagði Eiður og uppskar hlátur úr settinu.

Síðar fóru þeir að rökræða hvort Cristiano Ronaldo og félagar í Portúgal, sem gerðu óvænt jafntefli gegn Kongó, eða Argentína myndi ná betri árangri á mótinu. Eiður sagðist ætla láta Albert fá númerið hjá Messi ef Portúgal næði betri árangri en Argentína.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Messi og Eiður á góðri stundu ásamt Thierry Henry

Messi og Eiður á góðri stundu ásamt Thierry Henry

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.