Fotbolti.net
18.06.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Már Ægisson framlengir við Fram

Már Ægisson framlengir við Fram
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Már Ægisson hefur skrifað undir nýjan samning við Fram sem gildir út tímabilið 2028.
Már er uppalinn hjá Fram og hefur spilað með rúmlega 200 leiki frá árinu 2018. Hann hefur komið við sögu í fimm leikjum í Bestu deildinni í sumar.

„Már er Framari í húð og hár og við erum afar ánægð með þá tryggð sem hann hefur sýnt félaginu. Ég man eftir Mása átta ára og stjórnlausum í Safamýrinni og það hefur verið virkilega gaman að fá að fylgjast með honum vaxa og þroskast í þann leikmann og einstakling sem hann er í dag,“ sagði Sigurður Hrannar Björnsson, formaður meistaraflokksráðs karla.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.