Fotbolti.net
18.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Ragna Lóa í KR. (Staðfest)

Ragna Lóa Stefánsdóttir hefur fengið félagsskipti úr Ipswich Town í KR og mun hún líklega spila með KR og fylla skarðið sem að Guðrún Sóley Gunnarsdóttir skildi eftir sig í vörn liðsins. Ragna Lóa hefur ekki leikið fótbolta hér á landi í nokkur ár en maður hennar Hermann Hreiðarsson hefur leikið í Englandi undanfarin ár. Ragna Lóa var lykilmaður í KR og íslenska landsliðinu fyrir nokkrum árum en meiddist alvarlega í landsleik á Laugardalsvelli og varð að hætta knattspyrnuiðkun um stund og um tíma var talið að hún myndi aldrei spila knattspyrnu á ný.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.