18.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Morris til Leeds. (Staðfest)
Jody Morris hefur staðist læknisskoðun og krotað undir 2 ára samning við Leeds United. Morris sem er 24 ára miðjumaður kemur frítt en Chelsea leysti hann undan samningi í vor. Morris segist vera ánægður og vonar að hann eigi eftir að eiga sinn þátt í velgengni Leeds á komandi árum.
