18.07.12 - 13:52
Hafliði Breiðfjörð
Zlatan Ibrahimovic til Paris Saint Germain (Staðfest)

Zlatan er orðinn leikmaður PSG.

Mynd: Getty Images

Zlatan er orðinn leikmaður PSG.

Mynd: Getty Images
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic er genginn til liðs við Paris Saint Germain frá AC Milan. Á vef franska félagsins er þetta staðfest og að leikmaðurinn hafi skrifað undir þriggja ára samning.
Kaupverðið er ekki gefið upp en PSG keypti Zlatan og Thiago Silva saman frá AC Milan og talið að kaupverð fyrir þá saman hafi verið 62 milljónir evra. Þegar Silva samdi við PSG á laugardaginn kom fram að kaupverðið á honum hafi verið 42 milljónir punda.
Fyrr í dag hafði Marco Verratti komið til PSG frá Pescara á Ítalíu og gert við félagið fimm ára samning.
Eftir að Qatar Investment Authority eignaðist 70% af félaginu í fyrra og þau 30% sem eftir stóðu fyrr á þessu ári hefur félagið farið mikinn í leikmannakaupum enda orðið eitt ríkasta félag heims.

Heimild: Vefur PSG