18.07.12 - 17:18
Elvar Geir Magnússon
Modibo Maiga í West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur tryggt sér Modibo Maiga frá Sochaus. Þessi 24 ára leikmaður hefur verið orðaður við lið á Englandi um nokkurt skeið.
Maiga getur spilað í fremstu víglínu eða á vængnum en hann hefur gert fjögurra ára samning.

„Ég er mjög ánægður og spenntur. Ég veit að West Ham er stórt félag á Englandi og ég hlakka til að spila fyrir það,\" segir Maiga.
„Ég er gríðarlega stoltur af því að vera kominn í ensku úrvalsdeildina.\"
West Ham hefur fengið til sín fimm leikmenn síðan liðið komst upp úr Championship-deildinni. Auk Maiga eru það Mohamed Diamé, George McCartney, Jussi Jaaskelainen og Stephen Henderson.