lau 18. september 2021 09:30
Victor Pálsson
Tuchel bjóst við Kane í Man City
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, bjóst við að Harry Kane myndi ganga í raðir Manchester City í sumarglugganum.

Kane var nálægt því að semja við Man City í sumar en félögin náðu að lokum ekki samkomulagi um kaupverð.

Kane verður í eldlínunni á morgun er Tottenham spilar einmitt við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég bjóst við að þetta myndi gerast. Ég var ekki hræddur en ég var áhugasamur um hvernig þetta gæti breytt leikstíl Man City," sagði Tuchel.

„Við óttumst engan. Við tökum öllum liðum eins og þau eru, Man City, Man Utd og Liverpool. Það eru sterkustu liðin í þessari deild."

„Þetta eru þeir sem við viljum keppa við og það er eðlilegt að þeir berjist um bestu leikmennina. Þess vegna hélt ég að þetta gæti gerst."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner