Neal Maupay var hetja Everton er hann skoraði eina mark leiksins í sigri á West Ham í dag.
Þetta var fyrsta mark Maupay fyrir Everton í öðrum leik sínum eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Brighton í sumar. Þetta var einnig fyrsti sigur Everton á tímabilinu en liðið hafði gert fjögur jafntefli í röð fyrir leikinn í dag.
Liðinu hefur sárvantað markaskorara þar sem Dominic Calvert-Lewin hefur verið frá vegna meiðsla. Frank Lampard stjóri Everton var mjög ánægður með Maupay í dag.
„Frábært mark, týpískt markaskorara mark. Það er ekki auðvelt að fá svona fasta sendingu og ná völdum á boltanum og ná skoti svona fljótt," sagði Lampard.
„Þetta er það sem okkur hefur vantað. Við vorum með vængmenn fremst, það gekk ágætlega en við þurftum framherja í kringum markið sem gat breytt leiknum fyrir okkur. VIð hefðum mögulega gert jafntefli í dag án hans."