Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. október 2021 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Albert spilaði sig í lið vikunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson átti góðan leik fyrir AZ Alkmaar þegar liðið fór illa með Utrecht í hollensku Eredivisie. Hann er í liði vikunnar fyrir frammistöðu sína.

Albert lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Vangelis Pavlidis og skoraði svo fimmta mark AZ úr vítaspyrnu á 86. mínútu.

Alls eru fimm leikmenn AZ í liði vikunnar. Albert hefur skorað þrjú mörk fyrir AZ á tímabilinu og skoraði tvö mörk fyrir Ísland gegn Liechtenstein fyrir viku síðan.

AZ er með tólf stig eftir átta spilaða leiki og á leiki til góða á flest liðin fyrir ofan sig í töflunni. Næsti leikur AZ er gegn CFR Cluj í Sambandsdeildinni á fimmtudag.


Athugasemdir
banner
banner