Fotbolti.net
18.11.26 - 10:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hjartnæm kveðja Arons Einars - „Þú varst með mér og veittir mér styrk"

Hjartnæm kveðja Arons Einars - „Þú varst með mér og veittir mér styrk"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson birti hjartnæma færslu á samfélagsmiðlum í gær í kjölfar kveðjuleiks síns með landsliðinu.

Leikurinn var hans 113. fyrir landsliðið og jafnaði hann leikjamet Birkis Bjarnasonar.

Í færslunni minnist hann systur sinnar, Tinnu Bjargar Malmquist Gunnarsdóttur, sem lést árið 2023, langt fyrir aldur fram.

„Emotional og erfitt að kveðja en á sama tíma þakklátur fyrir það geta horft til baka og sjá ekki eftir neinu! What a fkn journey its been," skrifar Aron sem hóf landsliðsferilinn 2008.
Aron spilaði í treyju númer 14 til heiðurs systur sinnar
TENGT EFNI

Aron spilaði í treyju númer 14 til heiðurs systur sinnar

„Ég veit að þú varst með mér þarna í gær (mánudag) að veita mér styrk í að klára mitt verkefni elsku Tinna mín! Love you og sakna þín á hverjum degi, hún vildi að ég hefði hætt fyrir 4 árum því hún sá hve mikið ég var að þjást líkamlega.. en þegar þú fórst frá okkur gafstu mér styrk í að halda áfram," skrifar gamli landsliðfyrirliðinn sem leiddi Ísland á EM og HM árin 2016 og 2018.


Hjartnæm kveðja Arons Einars - „Þú varst með mér og veittir mér styrk"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar: Greip þessa treyju árið 2008 og ætlaði aldrei að gefa hana frá mér

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.