Lionel Messi hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann eftir rauða spjaldið sem hann fékk í 3-2 tapi Barcelona gegn Athletic Bilbao í úrslitum spænska Ofurbikarsins um helgina.
Messi fékk að líta rauða spjaldið í viðbótartíma fyrir að slá til Asier Villalibre.
Hinn 33 ára gamli Messi fékk þarna sitt fyrsta rauða spjald í 753 leikjum með Barcelona.
Spænskir fjölmiðlar bjuggust jafnvel við að bannið yrði lengra en aganefnd dæmdi Messi í tveggja leikja bann í dag.

Messi verður í banni gegn Cornella í spænska konungsbikarnum á fimmtudaginn og gegn Elche í úrvalsdeildinni um næstu helgi.
Athugasemdir