Fotbolti.net
19.01.26 - 10:10
Kári Snorrason

Þjálfari Senegals rauk út eftir uppþot blaðamanna

Thiaw fagnar með bikarinn.

Thiaw fagnar með bikarinn.

Canon

Mynd: EPA

Pape Thiaw, þjálfari Senegal, yfirgaf blaðamannafund skömmu eftir sigur liðsins gegn Marokkó í úrslitaleik Afríkukeppnarinnar í gær.

Senegal gekk af velli eftir að umdeild vítaspyrna var dæmd á liðið undir lok venjulegs leiktíma, en Brahim Díaz klúðraði spyrnunni. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Senegal tryggði sér sigur.
Dramatík leiksins hafði eflaust áhrif á blaðamenn, sem voru æstir á fundinum og vildu spyrja Thiaw út í brottför liðsins af vellinum.

Marokkóskir blaðamenn hrópuðu og bauluðu á Thiaw, á meðan senegalskir blaðamenn svöruðu með lófataki og fagnaðarlátum.

Þegar ljóst var að ekki tækist að koma á ró, stóð Thiaw upp og yfirgaf salinn án þess að svara spurningum.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.