Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. febrúar 2021 13:45
Magnús Már Einarsson
Fjögur ný lið í 2. deild kvenna - Breytt fyrirkomulag
Fram er á meðal liða í 2. deild kvenna.
Fram er á meðal liða í 2. deild kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mótanefnd KSÍ hefur birt drög að leikjum 2. deildar kvenna keppnistímabilið 2021.

2. deild kvenna hefst með tveimur leikjum 12. maí, en þá mætast Fram og Hamararnir annars vegar og KH og Hamar hins vegar. Umferðinni lýkur svo með fjórum leikjum degi síðar, 13. maí.

Breyting verður á mótafyrirkomulagi deildarinnar, en leikin er einföld umferð og leikur hvert lið 12 leiki. Eftir þessa einföldu umferð fer fram úrslitakeppni fjögurra liða þar sem fjögur efstu lið mótsins komast í úrslit. Í undanúrslitum er leikið heima og að heiman, en þar mætast:

Lið í 4. sæti - lið í 1. sæti
Lið í 3. sæti - lið í 2. sæti

Sigurvegarar í undanúrslitum leika til úrslita og tapliðin leika um 3. sætið. Leikið er til þrautar og ákveður Mótanefnd KSÍ leikstaði.

Fjögur ný félög taka þátt
Einherji Vopnafirði - tóku síðast þátt 2018
KH Reykjavík - tóku síðast þátt 2016
KM Reykjavík
SR Reykjavík

Það eru því 33 lið sem eru skráð til leiks í Íslandsmóti meistaraflokks kvenna og er það fjölgun um fjögur lið frá 2020.

Smelltu hér til að sjá drög að leikjaniðurröðun
Athugasemdir
banner
banner
banner