Fotbolti.net
19.03.17 - 10:31
Elvar Geir Magnússon

Willum: Ánægjulegt þegar ungir menn taka sviðið

Auglýsing
Willum: Ánægjulegt þegar ungir menn taka sviðið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Ég er mjög ánægður með leikinn,\"</I> sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, eftir <a href=\"http://fotbolti.net/news/18-03-2017/lengjubikarinn-kr-gekk-a-lagid-i-seinni-halfleik-gegn-ibv\" target=\"_blank\">4-0 sigur</a> gegn ÍBV í Lengjubikarnum í gær.
„Við vorum að tefla fram mörgum ungum og efnilegum leikmönnum sem stóðu sig feykivel í dag. Það er það jákvæðasta við leikinn. Þetta var stál í stál fram eftir leik en þegar við skoruðum annað markið þá losnaði um þetta,\" sagði Willum en öll mörkin komu í seinni hálfleik.

Það vantaði marga í KR-liðið.

„Danirnir okkar tveir þurftu að erindast aðeins í Danmörku og svo eru smávægileg meiðsli. Á þessum árstíma tekur maður ekki sénsa og lætur ungu leikmennina þá spila. Það er alltaf ánægjuefni þegar ungir menn taka sviðið. Svo er það þeirra að láta gömlu mennina ekki ýta sér út,\" sagði Willum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan en þar tjáir Willum sig meðal annars um sjaldséð mark frá Finni Orra Margeirssyni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.