19.03.18 - 15:35
Magnús Már Einarsson
Annar Brasilíumaður í Fram (Staðfest)

Frederico Saraiva, Pedro Hipolito þjálfari Fram og Marcus Vieira.

Mynd: Fram

Fram hefur fengið brasilíska varnarmanninn Marcus Vieira til liðs við sig en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning hjá félaginu.
Marcáo eins og hann er kallaður hefur spilað með EC Bahia, Juventude og Zaria Balti. Auk þess að hafa leikið með félagsliðum þá á Marcáo að baki 4 landsleiki með yngri landsliðum Brasilíu.
Marcáo er annar Brasilíumaðurinn sem Fram fær í sínar raðir á stuttum tíma en í síðustu viku samdi sóknarmaðurinn Frederico Saraiva við félagið.
„Tilkoma Marcáo til Fram verður til með samstarfi við öfluga umboðsskrifstofu Etiminanbrazil sem rekin er af Valdir Sousa sem er vel þekktur í knattspyrnuheiminum. Frá þessu umboðsfyrirtæki hafa farið tugir leikmanna til miðausturlanda og asíu. Marcáo er annar leikmaðurinn sem Etiminanbrazil setur á samning í Evrópu,\" segir á heimasiðu Fram.
„Fram hefur nú samið við tvo brasilíska leikmenn og verður mjög spennandi að sjá hvernig þeim gengur að aðlagast aðstæðum hér á landi. Þær eru vissulega ólíkar hitanum í Brasilíu en hins vegar er ástand valla og innanhúsknattspyrnan í knattspyrnuhöllum nýtt í þeirra augum.\"
..Það eru þegar farin að sjást skemmtileg tilþrif á æfingum. Marcáo er gríðarlega öflugur varnarmaður, 193cm á hæð og 90kg. Hann er feikisterkur í loftinu og með mikla sendigetu, bæði lengri sendingar og stuttar. Það er gaman að heyra hann kalla á sína samherja og stýra varnarlínunni með harðri hendi. Við bjóðum þennan geðþekka leikmann velkominn í Fram og í íslenska knattspyrnu.\"
Fram lagði Njarðvík 2-1 á föstudaginn í lokaleik sínum í Lengjubikarnum en liðið mætir Selfossi í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar þann 5. maí.
Komnir:
Heiðar Geir Júlíusson frá Þrótti R.
Frederico Saraiva frá Brasilíu
Marcus Vieira frá Brasilíu
Tiago Fernandes frá Portúgal
Mihajlo Jakimoski frá Makedóníu
Farnir:
Brynjar Kristmundsson í Þrótt V.
Hlynur Örn Hlöðversson í Breiðablik (Var á láni)
Högni Madsen í Þrótt V.
Indriði Áki Þorláksson í Hauka
Ivan Bubalo til Króatíu
Sigurpáll Melberg Pálsson í Fjölni