Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 16:38
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Midtjylland og Forest: Elías í sviðsljósinu
Albert á bekknum í Sambandsdeildinni
Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland, fagnar með liðsfélögum sínum eftir sigurinn í fyrri leiknum.
Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland, fagnar með liðsfélögum sínum eftir sigurinn í fyrri leiknum.
Mynd: EPA
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: EPA
Það verður leikið í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar í kvöld. Klukkan 17:45 er seinni leikur Midtjylland og Nottingham Forest.

Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson átti stórleik í fyrri leiknum sem hans lið vann 1-0. Núna er spurning hvort Midtjylland nái að klára verkefnið.

Vitor Pereira, stjóri Forest, fer ekki leynt með það að áhersla liðsins sé á ensku úrvalsdeildina þar sem það er í fallbaráttu.

„Evrópudeildin er auðvitað mikilvæg en mikilvægast hjá félaginu er að halda sér í ensku úrvalsdeildinni. Það er forgangsatriði," segir Pereira.

Byrjunarlið Midtjylland: Ólafsson, Erlic, Bech (f), Diao, Bak, Byskov, Castillo, Bravo, Billing, Osorio, Brumado

Byrjunarlið Nottingham Forest: Ortega, Morato, Ndoye, Dominguez, Lucca, Hutchinson, Yates (f), McAtee, Bakwa, Milenkovic, Abbott

Hér að neðan má sjá leikjadagskrá kvöldsins en meðal leikja er seinni leikur Rakow og Fiorentina í Sambandsdeildinni. Albert Guðmundsson byrjar meðal varamanna.

fimmtudagur 19. mars

Evrópudeildin
17:45 Freiburg - Genk (0-1)
17:45 Lyon - Celta (1-1)
17:45 Midtjylland - Nott. Forest (1-0)
20:00 Betis - Panathinaikos (0-1)
20:00 Porto - Stuttgart (2-1)
20:00 Roma - Bologna (1-1)
20:00 Aston Villa - Lille (1-0)

Sambandsdeildin
17:45 AEK Larnaca - Crystal Palace (0-0)
17:45 Rakow - Fiorentina (1-2)
17:45 AEK - Celje (4-0)
17:45 Mainz - Olomouc (0-0)
20:00 Shakhtar D - Lech (3-1)
20:00 Sparta Prag - AZ (1-2)
20:00 Vallecano - Samsunspor (3-1)
20:00 Strasbourg - Rijeka (2-1)



Athugasemdir
banner