„Undirbúningstímabilin eru í lengri kantinum hér á Íslandi og menn eru farnir að bíða eftir fyrsta leik," segir Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Íslandsmeistara Víkings.
Besta deildin fer af stað 10. apríl en þá taka Víkingar á móti Breiðabliki. Mögulegt er að þar verði Jóhann Berg Guðmundsson mótherji Gylfa en Jóhann er orðaður við heimkomu í Kópavoginn.
Breiðablik er að vinna í því að fá Jóhann og samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa þær viðræður þróast í rétta átt.

„Ég hef spjallað við hann um þetta, ég gerði það í vikunni. Ef hann ákveður að koma heim er það frábært fyrir Breiðablik og fyrir deildina. Því fleiri frábæra leikmenn sem deildin fær því betra er það fyrir áhorfendur og umfjöllun," segir Gylfi.
„Hann kæmi með gríðarlega reynslu í deildina. Hann hefur átt frábæran feril."
Jóhann Berg, sem er 35 ára, rifti í febrúar samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann er einn af ástsælustu landsliðsmönnum í sögu íslenska boltans, með yfir 100 landsleiki, og hann og Gylfi tveir af lykilmönnum gullkynslóðarinnar.
Gylfi spjallaði við Kára Snorrason fréttamann Fótbolta.net á kyningarfundi í Fossvoginum i í dag. Víkingar voru þar að að kynna nýja treyju hannaða af Halldóri Smára, og nýjan styrktaraðila en Boozt verður framan á treyjum félagsins.
Athugasemdir