Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 15:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ræddi framtíðina við Jóa Berg - „Yrði mikil innspýting fyrir Bestu deildina"
Arnar og Jói.
Arnar og Jói.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson er ekki í landsliðshópnum sem kemur saman eftir helgi og mætir Kanada og Haítí í tveimur vináttulandsleikjum í Kanada. Jóhann spilaði sinn 102. landsleik gegn Mexíkó í síðasta mánuði.

Hann er án félags eftir að hafa fengið samningi sínum við Al-Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rift fyrir rúmum mánuði síðan.

Jóhann hefur verið orðaður við heimkomu til Breiðabliks. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, var spurður út í Jóhann á fréttamannafundi í dag.

„Við áttum gott samtal núna í gær eða fyrradag. Við töldum það best að hann yrði ekki í þessum hóp, sem hann skildi mjög vel. Ég held það séu ákveðin tímamót hjá kappanum, hvað gera skal. Ég tjáði honum að hann ég teldi að hann gæti hjálpað okkur í haust (í Þjóðadeildinni) en svo hefur maður engin áhrif á hvað hann og hans fjölskylda velur. Mögulega kemur hann heim og það væri náttúrulega mikil innspýting fyrir Bestu deildina að fá hann (og sjá hann) kljást við Gylfa í fyrsta leik í Bestu deildinni," sagði Arnar.

„Núna held ég að hann og hans fjölskylda þurfi að liggja undir feldi. Ef hann er 'all-in' og í standi þá tel ég mjög líklegt að þeir (Gylfi og Jóhann) geti hjálpað okkur mjög mikið í haust. Hvort sem það væri með einni mínútu eða 90 mínútum. Vonandi heldur Jóhann áfram (að spila) og verður 'all-in' eins og hann gerir allajafna," sagði Arnar.
Athugasemdir
banner
banner