Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 19. mars 2026 14:15
Elvar Geir Magnússon
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Gylfi á fréttamannafundinum í Víkinni í dag. Með honum eru Hermann Haraldsson, forstjóri Boozt, og Nikolaj Hansen.
Gylfi á fréttamannafundinum í Víkinni í dag. Með honum eru Hermann Haraldsson, forstjóri Boozt, og Nikolaj Hansen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Guðjónsson og Gylfi í Mexíkó.
Helgi Guðjónsson og Gylfi í Mexíkó.
Mynd: KSÍ
Gylfi Þór Sigurðsson er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Kanada og Haítí í vináttulandsleikjum í Kanada síðar í þessum mánuði. Gylfi var ekkert valinn í landsliðið í fyrra og segist hafa verið mjög ánægður þegar hann fékk símtalið frá Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara.

„Ég er mjög ánægður og spenntur, þetta eru spennandi og skemmtilegir leikir framundan. Ég er mjög spenntur fyrir því að fara út," segir Gylfi, leikmaður Víkings, en hann spjallaði við Kára Snorrason fréttamann Fótbolta.net á kyningarfundi í Fossvoginum i í dag.

Víkingar voru þar að að kynna nýja treyju hannaða af Halldóri Smára, og nýjan styrktaraðila en Boozt verður framan á treyjum félagsins.

Gylfi var í landsliðshópnum gegn Mexíkó nýlega en það verkefni var fyrir utan glugga og næstum allir í íslenska hópnum að spila hér á landi. Kom valið núna á óvart?

„Já og nei. Ég ræddi vel og lengi við Arnar, bæði í Mexíkó og aðdragandanum að því verkefni. Ég spjallaði við hann varðandi þetta verkefni í síðustu viku," segir Gylfi.

Þetta lið ekki langt frá því að geta komist á stórmót
Hversu langt er hann að horfa með landsliðinu?

„Vonandi sem lengst. Núna er auðvitað full einbeiting á þessa tvo leiki og reyna að standa mig eins vel og ég get, reyna að kynnast leikstílnum og uppspilinu sem Arnar og landsliðið vill spila. Þetta er mikil breyting en við erum með marga góða unga leikmenn að spila á háu getustigi. Ég held að þetta lið sé ekki langt frá því að komast á stórmót."

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir Gylfi sig meðal annars um umræddan leik gegn Mexíkó og segir hann einn erfiðasta leik sem hann hefur spilað í ljósi loftlagsins en leikið var vel yfir sjávarmáli.


Slapp
banner