Kári skoraði átta og Árbær komst áfram
Haukar, Kári og Árbær unnu leiki sína í Mjólkurbikarnum í kvöld og halda því áfram í næstu umferð.
Haukar lentu undir á útivelli gegn Vængjum Júpíters en náðu að jafna fyrir leikhlé.
Haukur Darri Pálsson kom inn af bekknum á 65. mínútu og átti eftir að ráða úrslitum með tveimur mörkum á lokakaflanum, svo Haukar stóðu uppi sem sigurvegarar 1-3.
Kári rúllaði á sama tíma yfir Skautafélag Reykjavíkur í leik sem Skagamenn skoruðu átta mörk á útivelli. Staðan var orðin 0-4 eftir 20 mínútna leik svo sigurinn var aldrei í hættu.
Sigurjón Logi Bergþórsson og Jón Viktor Hauksson voru atkvæðamestir með tvennu hvor.
Egill Helgi Guðjónsson skoraði eina mark leiksins er Árbær hafði betur gegn Höfnum og að lokum vann Víðir Garði gegn KFG eftir vítaspyrnukeppni.
Staðan var markalaus í leikhlé og komust heimamenn í KFG í tveggja marka forystu í síðari hálfleik. Garðsmenn gáfust þó ekki upp og náðu að jafna leikinn til að knýja hann í framlengingu.
Hvorugu liði tókst að skora í framlengingu svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Þar hafði Víðir betur í bráðabana til að vinna vítakeppnina 6-5.
Vængir Júpíters 1 - 3 Haukar
1-0 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('30)
1-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('36)
1-2 Haukur Darri Pálsson ('83)
1-3 Haukur Darri Pálsson ('93)
SR 2 - 8 Kári
0-1 Máni Berg Ellertsson ('6)
0-2 Sigurjón Logi Bergþórsson ('9)
0-3 Jón Viktor Hauksson ('12)
0-4 Gísli Fannar Ottesen ('20)
0-5 Jón Viktor Hauksson ('50)
1-5 Markús Pálmi Pálmason ('51)
1-6 Sigurjón Logi Bergþórsson ('58)
2-6 Róbert Orri Ragnarsson ('75)
2-7 Máni Berg Ellertsson ('78)
2-8 Sævar Hrafn Sævarsson ('87)
Árbær 1 - 0 Hafnir
1-0 Egill Helgi Guðjónsson ('70)
KFG 2 - 2 Víðir
1-0 Björn Darri Ásmundsson ('50)
2-0 Arnar Ingi Valgeirsson ('55)
2-1 Ísak John Hill Ævarsson ('75)
2-2 Marc McAusland ('89)
5-6 í vítaspyrnukeppni
Athugasemdir

