Lamia 0 - 0 AEL Larissa
Theódór Elmar Bjarnason var í byrjunarliðinu hjá Lamia sem tók á móti AEL Larissa í efstu deild gríska boltans í dag.
Theódór Elmar varð þó fyrir því óláni að meiðast snemma leiks og var skipt útaf á 21. mínútu.
Við vonum að ekkert alvarlegt hafi hent Elmar sem er 34 ára gamall og á 41 leiki að baki fyrir A-landsliðið.
Viðureigninni lauk með markalausu jafntefli og er Lamia í þægilegri stöðu sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Athugasemdir