19.05.19 - 15:18
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Fiorentina í fallhættu - Þriðji sigur Empoli í röð
Parma bjargaði sér frá falli

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það er ótrúlega mikil spenna á síðustu metrunum í ítölsku fallbaráttunni eftir þriðja sigur Empoli í röð. Nýliðarnir eru komnir úr fallsæti fyrir lokaumferðina.
Leikmenn Empoli skiluðu inn magnaðri frammistöðu gegn Torino í dag og unnu leikinn 4-1. Liðið er einu stigi fyrir ofan fallsæti og heimsækir Inter um næstu helgi. Sigur á San Siro myndi tryggja sæti Empoli í deildinni.
Þetta er slæmt fyrir Torino sem gæti misst af Evrópudeildarsæti vegna tapsins.
Parma tryggði þá sæti sitt í Serie A með 1-0 sigri á Fiorentina. Eina mark leiksins kom á 80. mínútu, Gerson var óheppinn að setja boltann í eigið net eftir hornspyrnu.
Fiorentina klúðraði ótrúlegum dauðafærum í leiknum og er afar óvænt í fallhættu fyrir lokaumferðina. Liðinu nægir stig á heimavelli gegn Genoa í lokaumferðinni til að bjarga sér, en tap þar gæti leitt til falls.
Chievo og Sampdoria skildu þá jöfn 0-0 í þýðingarlitlum leik.
Empoli 4 - 1 Torino
1-0 Afriyie Acquah ('27)
1-1 Iago Falque ('56)
2-1 Matteo Brighi ('65)
3-1 Giovanni Di Lorenzo ('70)
4-1 Francesco Caputo ('89)
Parma 1 - 0 Fiorentina
1-0 Gerson ('80, sjálfsmark)
Chievo 0 - 0 Sampdoria
Rautt spjald: Federico Barba, Chievo ('40)