19.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Sereni til Lazio. (Staðfest)
Markmaðurinn Matteo Sereni er genginn til liðs við Lazio frá Ipswich Town eftir að hafa staðist læknisskoðun. Sereni sem er 28 ára Ítali var í láni hjá Brescia á seinasta tímabili og mun því aftur leika í Serie A. Sereni spilaði 33 leiki með Ipswich en hann kom þaðan frá Sampdoria.
