Fotbolti.net
19.07.12 - 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer

Boulahrouz til Sporting Lisbon (Staðfest)

Khalid Boulahrouz.

Khalid Boulahrouz.

Canon

Mynd: Getty Images

Khalid Boulahrouz er genginn til liðs við Sporting Lisbon á frjálsri sölu en þetta var staðfest í gær.

Hollendingurinn skrifaði undir tveggja ára samning við portúgalska félagið eftir að samningur hans við Stuttgart rann út í sumar.
Boulahrouz spilaði áður fyrr með Chelsea en þessi þrítugi varnarmaður ætlar sér stóra hluti í Portúgal.

,,Ég er mjög metnaðarfullur, rétt eins og Sporting, og mér fannst ég passa mjög vel hérna,\" sagði Boulahrouz.

,,Ég er kominn til að hjálpa liðinu að vinna titla. Ég mun gefa allt til að ná árangri með liðinu og ég vona að ég muni veita stuðningsmönnunum margar góðar minningar.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.