19.07.12 - 10:14
Magnús Már Einarsson
Hilmar Rafn í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Haukar hafa fengið Hilmar Rafn Emilsson til liðs við sig á láni frá Valsmönnum.
Hilmar Rafn er uppalinn hjá Haukum en hann ákvað að ganga í raðir Vals síðastliðinn vetur.
Hilmar hefur verið að glíma við meiðsli í sumar en hann hefur einungis komið við sögu í einum leik í Pepsi-deildinni.
Á ferli sínum hefur Hilmar samtals skorað 42 mörk í 117 deildar og bikarleikjum með Haukum.
Hann mun nú reyna að hjálpa Haukum í toppbaráttunni í fyrstu deildinni en liðið er sem stendur í þriðja sæti, með jafnmörg stig og Víkingur Ólafsvík í öðru sætinu.