Fotbolti.net
19.07.12 - 15:58
Magnús Már Einarsson

Theo Furness í ÍA (Staðfest)

The Furness (í miðjunni) ásamt bræðrum sínum Dominic og Seb Furness.

The Furness (í miðjunni) ásamt bræðrum sínum Dominic og Seb Furness.

Canon

Mynd: Valgeir Kárason

ÍA hefur fengið enska leikmanninn Theo Furness til liðs við sig frá Tindastól en hann hefur gert samning við skagamenn út tímabilið.

Theo, sem er fæddur árið 1991, hefur skorað sex mörk í níu leikjum með Tindastóli í fyrstu deildinni í sumar en hann lék einnig með liðinu síðari hlutann á síðasta tímabili.
Theo getur bæði leikið á kantinum og í bakverði sem og í fleiri stöðum framarlega á vellinum en hjá Tindastóli hefur hann verið á hægri kantinum.

Gary Martin mun síðar í dag ganga formlega til liðs við KR frá ÍA en Þórður Þórðarson þjálfari skagamanna segir að liðið muni ekki fá leikmann frá Vesturbæingum í skiptum fyrir Gary eins og orðrómur hefur verið um.

Enski miðjumaðurinn Mark Doninger er einnig á förum frá ÍA en nokkur félög hafa sýnt honum áhuga og skagamenn bíða nú eftir tilboðum frá þeim.

,,Við erum bara að bíða eftir að fá eitthvað frá þeim sem hann er að tala við,\" sagði Þórður við Fótbolta.net en hann reiknar með að ÍA nái í meiri liðsstyrk á næstunni til að fylla skarðið sem Mark og Gary skilja eftir sig.

,,Við erum að skoða ýmislegt og eigum örugglega eftir að gera eitthvað meira. Við erum með nokkur járn í eldinum,\" bætti Þórður við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.