Fotbolti.net
19.07.12 - 17:44
Magnús Már Einarsson

Gary Martin í KR (Staðfest)

Semur til ársins 2015

Gary á fyrstu æfingu sinni með KR.

Gary á fyrstu æfingu sinni með KR.

Canon

Mynd: Vefur KR

KR hefur gengið frá kaupum á framherjanum Gary Martin en hann kemur til félagsins frá ÍA.

Félögin komust að samkomulagi um kaupverð í vikunni og nú rétt í þessu skrifaði Gary undir samning við KR sem gildir út árið 2015.
Enginn leikmaður mun fara til ÍA í skiptum fyrir Gary eins og orðrómur hefur verið um. Gary var samningsbundinn ÍA þar til 16. október næstkomandi en KR-ingar hafa nú keypt hann í sínar raðir.

Gary lék sinn síðasta leik með ÍA þegar liðið sigraði Selfoss 4-0 á mánudagskvöld. Þar lagði Gary upp tvö mörk en eftir leik greindi Fótbolti.net frá því að hann væri á leið í KR.

Þessi 21 árs gamli Englendingur kom til ÍA um mitt sumar 2010 en hann hefur skorað 23 mörk í 38 deildar og bikarleikjum með félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.