19.07.12 - 20:38
Magnús Már Einarsson
Ben Everson í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Valgeir Kárason

Mynd: Valgeir Kárason
Breiðablik hefur fengið sóknarmanninn Ben J. Everson til liðs við sig frá Tindstóli.
Skagamenn vildu einnig fá Ben í sínar raðir en Blikar höfðu betur í kapphlaupinu um leikmanninn.

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Blika, fylgdist með Everson í 3-1 sigri Tindastóls gegn Þrótti í 1. deildinni í vikunni.
Ben ólst upp hjá Middlesbrough en áður en hann fór á Sauðárkrók lék hann í Bandaríkjunum við góðan orðstír.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur skorað 7 mörk í 10 leikjum fyrir Tindastól í 1. deildinni í sumar. Ben er annar leikmaðurinn sem Tindastóll missir í dag en Theo Furness gekk síðdegis til iðs við ÍA.

Heimild: Blikar.is