Alex Freyr: Erum barnalegir í teigunum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV náði í jafntefli gegn KA eftir að hafa verið manni færri síðasta stundafjórðunginn. Fótbolti.net ræddi við Alex Frey Hilmarsson, fyrirliða ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 2 KA
„Mér fannst við vera góðir út á velli og mögulega eiga eitthvað meira skilið út úr þessum leik. Við erum svolítið barnalegir í teigunum sem fer með þetta," sagði Alex Freyr.
ÍBV hélt KA fyrir neðan sig í töflunni en Alex Freyr átti erfitt með að sjá jákvæðu hliðarnar strax eftir leik.
„Ekki svona beint eftir leik, mögulega þegar ég er búinn að róa mig er ég sáttur með það," sagði Alex Freyr.
Eyjamenn vildu fá vítaspyrnu snemma leiks þegar Arnór Ingi Kristinsson féll í teignum.
„Mér fannst það. En við förum með þetta sjálfir, við þurfum að taka sénsinn okkar betur og verjast betur. Þessi mörk sem við fáum á okkur eru alveg sársaukafull," sagði Alex Freyr.